Færsluflokkur: Dægurmál
Miðvikudagur, 23. apríl 2008
Húsmæðratíðindi á krossgötum
Það er ekki laust við að sprengju hafi verið varpað í íslenskt samfélag í dag, þegar tilkynnt var að nýr ritstjóri Húsmæðratíðinda hafi verið ráðinn.
Húsmæðratíðindi hafa liðna áratugi þótt eitt merkasta dagblað hér á landi og þótt stimpill um sannleiksgildi frétta.
Herborg Hreiðarsdóttir hefur stýrt Húsmæðratíðindum frá upphafi, eða í ein 53 ár. Hún hefur þótt hafa sýnt fádæma stefnufestu og áræðni. Ekki síst á sjöunda áratugnum er íslenskar húsmæður börðust hvað harðast fyrir að fá fatasnið í íslensk blöð, hafandi þurft að leita til Bo bedre og Femina til þess.
Nú ber til tíðiðinda. Herborg mun um næstu mánaðamót stíga niður úr stól ritstjóra og Guðfinna Garðarsdóttir mun taka við ritstjórn blaðsins.
Í viðtali við Bergmálstíðindi segir Guðfinna að megin stefnu Húsmæðratíðinda verði haldið til streitu, enda hafi blaðið tryggt sig í áranna rás. Helstu áherslubreytingarnar verði á þá vegu að meira verði tekið fyrir af borðbúnaði, án þess þó að fatasnið verði tekin út.
Silfurstellið er ekki síður mikilvægt en dúkarnir segir Guðfinna. Eins þykir mér rétt að koma að fleiri uppskriftum, góðum ráðum við þvotta, sem og öðrum kvennamálum segir Guðfinna að lokum.
Bergmálstíðindi vilja óska Guðfinnu velfarnaðar í komandi starfi.
![]() |
Nýr ritstjóri hlakkar til |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 23. apríl 2008
Tími til kominn
![]() |
Lögregla beitir táragasi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 22. apríl 2008
Er í alvöru til fólk...
...sem nennir að spá í þetta?
Fólk sem á sér ekki líf.
![]() |
Vináttan orðin þvinguð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 22. apríl 2008
Vorferð Sandkötunnar er í dag
Sandskatan, samtök hagsmunaaðila að hagsmunasamtökum, heldur vorferðalag sitt í dag. Þetta er skemmtiferð, ætluð til að hrista saman félagana segir Baldvin Geirsson, formaður undirbúningsnefndarinnar.
Farinn verður rúntur um Álftanesið og nágrenni. Komið við á Bessastöðum.
Þetta verður bara rosa gaman, flaut, lull og pikknikk á eftir segir Baldur. Aðspurður um hvað hann nákvæmlega eigi við með að hrista saman félagana, vill Baldur ekkert láta hafa eftir sér frekar.
![]() |
Bílstjórar fóru með friði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 21. apríl 2008
Fjölpósturinn Fréttablaðið
Nú auglýsir Fréttablaðið einhvern poka eða tösku sem kallast Blaðberinn. Ég sá einmitt tvær stúlkur dreifandi þessu í Smáralindinni fyrir helgi. Þar sem ég gekk fram hjá annarri þeirra rétti hún einn slíkan að mér og spurði hvort ekki mætti bjóða mér. Hvað geri ég við hann?" spurði ég. Þú getur safnað í hann blöðunum og farið með út í gám" svaraði hún. Ég þarf þess ekki" svaraði ég að bragði. Blöðin ná ekki svo langt að komast inn til mín."
Póstkassinn minn er kyrfilega merktur, með gul-svörtum miða, að í hann skuli ekki setja neinn fjölpóst. Blaðburðarfólk Fréttablaðsins, sem og 24ra stunda, virðast þó ekki kunna að lesa. Kannski þeir telji þessi blöð sín ekki vera fjölpóst, en í mínum huga er allur póstur fjölpóstur sem ekki er merktur mér sérstaklega. Sér í lagi auglýsingabæklingar og umrædd blöð eru ekkert annað en auglýsingabæklingar með fréttum sem uppfylliefni. Ég fæ þessi blöð í póstkassann minn í minni óþökk og á leiðinni frá póstkassanum að íbúðinni minni, staldra ég við ruslalúguna og flokka póstinn. Þessi blöð og allt hitt auglýsingaskrumið fer beinustu leið í tunnuna, ólesið. Mér dettur ekki til hugar að gerast einhver ruslasafnari fyrir þetta fólk og að koma þeirra rusli í einhvern gám. Þeim væri nær að spara sjálfum sér og mér ómakið og taka blöðin bara beint úr prentvélinni og henda þeim í ruslið þar. Spara sér þannig flutnings- og útburðarkostnað og mér óþarfa vesen við að þurfa sífellt að losa þessi blöð úr póstkassanum til að annar póstur komist í hann.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Mánudagur, 21. apríl 2008
Hagstofan færir út kvíarnar
Árið 2006 komu út 1419 bókatitlar hér á landi, samkvæmt nýrri skýrslu Hagstofunnar. Það jafngildir 4,6 titlum á hverja 1000 íbúa, sem skiptast í tvær spennusögur, eina ævisögu, eitt fræðirit og eina barnabók. Þar sem barnabókatitlar þykja ekki jafnfínn pappír og fullorðinsrit, hafa þeir einungis merkilegheitastuðulinn 0,6.
Einnig kemur útgáfudreifingin fram í skýrslunni. 1388 titlar komu út í desember, 21 titill í júní og restin dreifðist síðan yfir restina af árinu. Enginn titill var gefinn út í janúar.
Skýrsla þessi þykir, fyrir margar hluta sakir, afar athygliverð og mun vera sú fyrsta sinnar tegundar sem unnin er af óháðum aðila. Þó þykir það allra athyglisverðast að það skuli vera Hagstofa Íslands sem standi í gerð svona skýrslu. Hingað til hefur hlutverk hennar verið talið vera annað, en það virðist nú vera að breytast.
Að sögn Þórðar Þorkelssonar, verkefnastjóra hjá Hagstofu Íslands, er ástæðan sú að þar sem talsvert hefur dregið úr hefðbundinni starfsemi Hagstofunnar, m.a. eftir að Þjóðskrá var gerð að sérstöku batteríi, hefur Hagstofan leitað í auknum mæli á ný mið. Þetta sé eitt hinna nýju verkefna Hagstofunnar, að taka saman skýrslur fyrir aðila úti í bæ. Að sögn Þórðar munu fleiri verkefni vera í burðarliðnum, s.s. verðkannanir, viðhorfskannanir og samantekt Íslenska listans, sem er vinsældarlisti FM957.
![]() |
4,6 bækur á hverja þúsund íbúa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 21. apríl 2008
Dyntir og dólgar
Góðri helgi lokið. Mér tókst að drösla krökkunum og þau mér, út í bíl í tæka tíð í morgun rétt fyrir kl. átta. Bíllinn gerði sig hinsvegar líklegan til að vera með leiðindi. Sagðist ekki ætla í gang. Hann er annars frekar skapgóður greyið. Hann hefur einu sinni áður reynt að leika þennan leik við mig, en það var í ágústbyrjun 2006. Þá rann honum fljótt reiðin, eða hvaða dyntir sem hlupu í hann þá. Eftir nokkrar mínútur þíddist hann mig og fór í gang. Hefur hagað sér vel síðan. Þar til í morgun. Líklega var hann bara ekki fullvaknaður, frekar en ég. Eftir að hafa gert þrjár tilraunir til að ræsa hann og farið oní húddið, með spekingssvipinn að vopni, settist ég inn í hann aftur og tók upp símann. Ég hringdi í skóla barnanna og tilkynnti að þeim myndi seinka. Að loknu símtalinu fór bíllinn í gang eins og skot. Hann er stríðinn, blessaður.
Eftir að hafa komið afkvæmunum á sinn stað ók ég sem leið lá til baka og í vinnuna. Þar sem ég keyrði Reykjanesbrautina rétt fyrir hálf níu á mínum löglega 70Km hraða, í suður undir brúna við Breiðholtsbraut, renndi ég mér yfir á vinstri akrein til að hleypa strollunni sem ég sá koma niður brekkuna, af Breiðholtsbraut. Um að gera að liðka til og láta umferðina ganga smurt, ekki satt? Síðan fylgdist ég með hvar ég geti skotið mér aftur í eitthvert bilið, inn á hægri akrein aftur. Sá færi á að skjóta mér aftan við einn, gráan bíl. Sá engan fyrir aftan. Gaf stefnuljós og gerði mig líklegan til að renna mér yfir á hægri akrein. Sá þá hvar kom á fullri ferð, talsvert hraðar en ég, svartur smábíll merktur Pepsi Max í bak og fyrir. Ég hrökklaðist til baka og beið eftir að njólinn sá arna tempraði hraðann, enda var hann algerlega á leið inn í gráa bílinn sem ég hafði ætlað mér að smeygja mér aftan við. Ég jók í stað ferðina og tók fram úr þeim gráa. Ég fylgdist með í speglunum og sá að svarti Pepsi bíllinn var kominn í rassgatið á mér og var greinilega að sæta færis á að komast fram úr. Eftir að ég hafði farið fram úr þeim gráa, renndi ég mér yfir á hægri akrein. Sá ég þá hvar svarti Pepsi bíllinn æðir fram úr mér og annar nákvæmlega eins bíll strax á eftir, nema hvað sá var kyrfilega merktur Doritos. Ég sá síðan á eftir þeim hverfa sitt á hvað milli bíla, þar sem þeir skíðuðu áfram á milli akreina. Þeir hafa líklega verið í spreng og þurft að komast á klóið. Hvað sem því líður er svona fólk ekkert annað en umferðardólgar og ættu ekki einu sinni að fá að hjóla þríhjólum.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 20. apríl 2008
Af því bara
Það er gaman að vera foreldri. Vissulega stundum strembið, en án þess væri það ekki eins gefandi. Alveg frá því börn eru lítil grjón reyna þau m.a. að finna veiku punktana hjá okkur. Bara hluti af því að læra á umhverfi sitt. Það er þroskandi fyrir mann að æfa þá tækni að vera sanngjarn og reyna að samræma frjálsræði og aga. Oft þarf maður að vera diplómat og stundum þýðir ekkert annað en standa á sínu. Kunna þó að gefa eftir, styðji þau mál sitt gildum rökum. Það kennir þeim rökræna hugsun og að samskipti við fólk ganga hvorki upp með yfirgangi né undirgefni, heldur með gagnkvæmri tillitsemi og sanngirni. Mér finnst þetta skemmtilegt verkefni og ekki síst þegar þau eru að stíga inn í gelgjuna. Ég er þó ekki fullkominn og stundum tekst mér að koma mér í þá stöðu að vera þaulspurður um eitthvað. Séu þau t.d. á öndverðum meiði um eitthvert mál og ég svo á öndverðum meiði við þau. Ég hafi kannski tekið einhverja ákvörðun sem þau mótmæli, en án þess að leggja fram gilda ástæðu fyrir mótmælum sínum önnur en það að þau bara langi. Þá er gott að eiga hin ávallt óhrekjanlegu rök í bakhöndinni. Rök sem alltaf má grípa til er allt annað brestur.
Af því bara."
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 20. apríl 2008
Fjas og fíflaskapur
Jæja, þá er sigið á seinni hluta helgarinnar og ég ekki búinn að fjasa neitt. Mig óar satt að segja yfir þessari eilífu jákvæðni. Nú finn ég innra með mér einhverja þörf fyrir gott fjas og ætla að reyna að finna þeirri þörf farveg, hér og nú. Ekki búinn að fá úr'onum allt of lengi, fjasbrunninum mínum allt svo. Voruði að hugsa eitthvað annað?
Best að smíða smá kaffi fyrst.....
Ég þarf eiginlega að hafa mig allan fram, þessa dagana, til að verða mér úti um gremju og alvöru þörf fyrir fjas. Helgin búin að vera alveg sallafín. Hún hófst á því ég hitti æskuvinkonu mína, sem ég hélt jörðin hefði bara gleypt á sínum tíma. Það var svona eins og hitta aftur löngu týnda systur. Síðan er ég bara búinn að hafa það drullufínt með krökkunum mínum.
Vorum að koma úr bíó. Þau völdu myndina. Superhero movie. Ég var alveg að ná að koma mér upp þessum fínu fyrirframskoðunum um myndina. Hélt þetta væri einhver 'raunveruleg' ofurhetjumynd sem ég gæti kannski dottað yfir, en annað kom á daginn. Þetta reyndist vera eðal prumpubrandaramynd a'la Leslie Nielsen. Enda lék hann hlutverk í myndinni. Þó ekki aðalhlutverkið. Bíóferðin var hinn mesta skemmtun og sá gamli (eh..ég ) hló sko ekki minna en hinar gelgjurnar í salnum. Nauðsynlegt að hleypa út litla strákpjakknum í sér og hlæja að svona vitleysu. Eini gallinn hvað myndin var stutt, í aftari endann.
Við fórum í Háskólabíó. Eftir að hafa keypt miðana, á 'aðeins' 650 krónur per haus, tókum við okkur vitanlega stöðu framan við nammisöluna. Ákveðið var að úða í sig vel sykruðum gosdrykkjum, poppkorni og síðast en alls ekki síst...natchos með ostasósu. Rétt í þann mund er röðin kom að mér kom strákurinn minn til mín og sagðist hafa heyrt að sósan væri köld. Þegar röðin kom síðan að mér spurði ég stúlkuna sem afgreiddi hvort rétt væri að sósan væri köld. Hún svarar því játandi. Ég spur hvenær hún verði orðin heit. Örugglega í hlénu" segir hún. Í hlénu, alveg eins og síðast?" hvæsti ég á hana til baka. Við sonurinn fórum nefnilega fyrir þremur vikum eða svo í þetta sama bíó. Þá hafði greinilega enginn haft rænu á að kveikja á sósuhitaranum fyrr en allt of seint, rétt eins og nú. Það skal enginn segja mér að starfsfólkið mæti ekki fyrr en fimm mínútum fyrir opnun miðasölunnar. Er ekki rétt að koma inn í próptókollinn þarna að byrja að hita sósuna í tæka tíð. Kannski bara byrja á því áður en farið er í að poppa, fyrst hún er svona lengi að hitna.
Kannski mér takist að gera þetta bara að þráhyggju hjá mér, að fylgjast með sósumálum Háskólabíós? Mig dauðvantar þráhyggjur þessa dagana, eftir að mér fór að vera sama um speglamálin í Hagkaupum, Smáralind.
Meira kaffi...
Kaffið smakkast prýðilega, án þess þó að hafa neinn fínan stimpil. Líklega ræktað af þrælum einhvers lénsherrans og flutt til evrópu, gegn um danmörku. Markaðsett sem dönsk eðalframleiðsla, eins og sykurinn.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 20. apríl 2008
Prins í garði kærustunnar, seint um kvöld
Tíðrætt hefur verið undanfarið um æfingar leyniþjónustunnar MI5 í Bretlandi. Þar hafa æfingaaðferðir Harry prins verið sérstaklega gagnrýndar. Talsmenn leyniþjónustunnar segja gagnrýnina ómálefnalega og tilhæfulausa. Henni sé einvörðungu ætlað að koma höggi á, hinn háttvísa, Harry prins.
Daily Trelegraph birti heilsíðuumfjöllun um vafasamar aðferðir eins og það var orðað. Þar er sagt frá ferð prinsins á strippstað, seint um kvöld. Talsmenn MI5 segja ferð hans þangað verið hluta af æfingunni Pole position þar sem æfð voru gæði dulargerva. Við verðum að vera viss um að rykfrakkarnir hylji allt og ekkert komi fram hvað gerist innan klæða segir ónefndur talsmaður MI5. Þá er strippstaður afar hentugt umhverfi til æfinga.
Síðar þetta sama kvöld, segir Daily Telegraph, var prinsinn gripinn af lögreglu í garði fv kærustu sinnar. Þarna eru hlutirnir slitnir úr samhengi segir talsmaður MI5. Í dulargervisverkefnum verða menn að vera 100% trúverðugir. Það getur skilið milli lífs og dauða, þegar alvaran tekur við. Hverjum þætti trúanlegt að sjá mann taka strætó heim til sín eftir 3ja tíma törn á strippbúllu? spyr talsmaður MI5 að lokum.
![]() |
Prinsinn lenti í garði kærustunnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)