Færsluflokkur: Dægurmál

Skúbb aldarinnar!

Ég las að breska bílskúrsbandið The Beatles muni bráðlega halda tónleika á Íslandi. Þetta hlýtur að vera mikið fagnaðarefni unnenda þeirrar hljómsveitar, þar eð hún hefur ekki komið saman um langt skeið. Allir upprunalegu meðlimir sveitarinnar munu skipa hana við þetta tilefni. Enn fremur er haft eftir Paul McCartney, bassa- og mandólínleikara sveitarinnar, að um langt skeið hafi verið heldur dautt yfir sveitinni, en nú verði breyting þar á.

Forsalan er á Nasa.


Að vera málefnalegur

Ragnar hét köttur. Hann átti heimilisfesti á heimili mínu um eins og hálfs árs skeið, fyrir 15 áum eða svo. Ragnar var afar þægilegur í allri umgengni. Prúður og háttvís, þótt stundum ætti hann til galsa, enda ungur og óharðnaður. Ágengni og jafnvel smá frekju sýndi hann helst eftir að heimilisfólkið kom heim og hann hafði líklegast verið heldur einkatta yfir daginn. Hroka átti hann ekki til. Forvitinn var hann. Hann var áhugasamur og málefnalegur. Já hann var ætið málefnalegur. Hann átti alveg til að gagnrýna, á sinn hátt. Sú gagnrýni var þó ávallt málefnaleg. Aldrei gagnrýndi hann nokkurn fyrir skoðanir og aldrei gagnrýndi hann persónu manns, né kattar. Hann lét óánægju sína í ljós, þætti honum á sér brotið eða hann væri að öðru leiti ósáttur við einhverjar gjörðir. Þó ekki persónuna, heldur gjörðina. Ragnar tók lífinu eins og það birtist honum og reyndi aldrei að yfirfara sínar skoðanir á aðra né ganga á rétt annarra. Ragnar var æðrulaus.

Ég hef undanfarið lesið ýmis skrif og umræður um útlendinga á íslandi. Ég hef líka lesið skrif og umræður er tengjast trúmálum eða trúarhópum. Ýmis önnur skrif og umræður mætti líka tína til. Skrif og umræður fólks sem ekki er málefnalegt. Þar sem hópar fólks eru dregnir í svaðið fyrir gjörðir tiltölulega fárra einstaklinga innan hópanna. Þar sem persónur allra innan hóps eru gagnrýndar vegna gjörða tiltölulega fárra. Jafnvel þar sem fólk er rakkað niður fyrir það eitt að vera það sem það sem það er, eða þaðan sem það er. Það er ekki málefnalegt. Fólk tjáir sig um gremju sína yfir að aðrir, frjálsir, einstaklingar skuli kjósa að lifa sínu lífi á annan hátt en það sjálft, án þess þó að ganga á frelsi annarra.

Ég ætla ekki að skipta mér að hvernig aðrir haga sér, svo lengi sem þeir ganga hvorki á rétt minn né annarra. Þó tel ég að margir mættu taka sér Ragnar til fyrirmyndar.


Nú jæja?

Er uppsveiflunni virkilega lokið? Woundering Það hafði bara alveg farið fram hjá mér. 

Þar til fyrir nokkrum vikum síðan. Angry

Halló!! Einhver heima?


mbl.is Uppsveiflunni lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heyrði ég rétt?

Sagði hann örugglega heilbrigt fjármálakerfi? Errm
mbl.is Reynt að brjóta fjármálakerfið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjartur dagur

Ég get ekki sagt annað eftir þessar fréttir.

Mér kæmi á óvart ef frávísuninni yrði áfrýjað.

Ef mig brestur ekki þekking þá myndi Hæstiréttur ekki fella dóm um málið sjálft, heldur annaðhvort staðfesta frávísunina og þá gætu stefnendur líklega höfðað nýtt mál, eða vísað málinu aftur í hérað.

Sama hvað verður, get ég ekki séð af þeim gögnum sem koma fram í dóminum, annað en að rekstur torrent.is brjóti ekki í bága við lög.

Það verður forvitnilegt að sjá hvað gerist næst.

Ég get ekki annað en glaðst yfir þessum fréttum. Mér finnst með ólíkindum hvernig rétthöfum höfundarréttar hefur verið hleypt á hina og þessa spena með margfaldri skattlagningu á öllum sköpuðum hlutum.

T.d. af útgefnum geisladiskum, sem kaupanda er heimilt að taka eitt afrit af til eigin nota. Síðan aftur af geisladisknum sem hann ætlar að afrita á, þrátt fyrir að hafa til þess heimild og greitt gjald til eiganda höfundarréttar.

Sem og þarf ég að greiða einhverjum plebbum úti í bæ höfundarréttargjöld af þeim geisladiskum sem ég kaupi í þeim tilgangi að skrifa mína eigin tónlist á.

Nei! Þessa mafíu þarf að uppræta. Vonandi þetta sé fyrsta hænuskrefið.


mbl.is Máli gegn Istorrent vísað frá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Obbossí!

Nú hefur einhver moggamaðurin komist í sjeneverið.

Ég ætlaði að kommenta á frétt um samning Mílu og FarIce. Henni fylgdi nefnilega upphaflega mynd af Ellen DeGeneres, en var reyndar búið að fjarlægja hana þegar ég ætlaði að blogga um fréttina. Í staðinn lenti ég á þessari frétt. Blogg linkurinn fylgir því greinilega ekki fréttinni, heldur henni Ellen.

Míla DeGeneres


mbl.is Ellen skákar Oprah
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Málið upplýst?

Hvernig getur málið talist upplýst þegar ekki hefur enn náðst í skottið á þeim er eitthvað kann hugsanlega að vita um uppruna kúpunnar?

Þótt vitanlega skuli menn ekki hlaupa upp til handa og fóta, að telja að eitthvað saknæmt hljóti að vera í spilinu, verður þó að teljast í hæsta máta skrýtið að mannabein endi sem stofustáss. Sér í lagi ef um ekki eldri bein eru að ræða en hugsanlega frá síðari hluta síðustu aldar. Hvar er svo búkurinn? Hugsanlegt er að manneskja hafi orðið úti. Fuglar eða snjóalög hafi síðan fært höfuðkúpuna frá búknum og hún síðan endað á arinhillunni.

Hvað veit ég? Hvað veit lögreglan?

Væntanlega vilja menn komast að hver manneskjan var og hvar, hvenær og hvernig hún lést?

Varla telst málið upplýst, áður en einhver líkleg niðurstaða fæst í málið og á meðan enginn veit neitt?


mbl.is Hauskúpan var meðal húsmuna í hjólhýsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Moldarkofatölfræði

Ég er víst ekki fullkominn, frekar en aðrir. Merkilegt nokk. Stundum stend ég mig að því að pirrast og stuðast.

Núna yfir heimskulegu væli 'kerlinga', af báðum kynjum, sem halda hvorki vatni né vindi yfir því að það hafi gerst um helgina að einungis útlendingar hafi gist fangageymslur lögreglunnar. Eins og það eigi eitthvað að sanna. Hvað eru margir útlendingar í landinu? Einhverjar þúsundir. Einhver prósent af hausatölu landsmanna. Svo gerist það, í fyrsta sinn, að einungis útlendingar gista fangageymslurnan einhverja nóttina. Hvað eru margar nætunar sem enginn útlendingur gistir þær, eða að hlutfall þeirra sé lægra en hlutfall útlendingar af íbúum þessa lands. Það eru talsvert meiri líkur til að allir fangar yfir nótt séu útlendingar en að fá fimm rétta í lottóinu. Þó hefur það ekki gerst fyrr. A.m.k. ekki verið flutt frétt af því fyrr. Það þarf ekki mikla tölfræðiþekkingu til að sjá í gegn um svona moldarkofatal.


Vinir og kunningjar

Mér varð hugsað aftur tímann. Sumarið 1989. Næstum 19 ár síðan. Vá!

Þá var ég ungur....yngri ;)

Frábært sumar, en mér varð hugsað til allra vinanna (kunningjanna). Hvar eru þau í dag? Ég á mína traustu vini sem enn eru í sambandi. Hvað varð um öll hin? Hvar eru Nonni, Palli, Kristín og Hrönn?

Kristín söng inn á lag hjá okkur félögunum, árið '91. Ég hitti hana á djamminu fyrir 5 árum eða svo. Þá orðin kærasta vinar vinnufélaga míns. Skondið. Ég hitti Hrönn einu sinni, á fylleríi líklega um '97, en þar utan hef ég hvorki séð tangur né tetur af þessu fólki.

Skemmtilegt fólk. Ég sakna þeirra


Homm

Ég á vin. Yndislegan, traustan vin. Vin sem ég veit muni fórna lífi sínu fyrir mig.

Fyrir nokkrum árum sagði hann mér frá tvíkynhneygð sinni. Hann fyndi ekki einungis til löngunar til kvefólks, heldur einnnig til karlmanna. Sem betur fer er ég ekki í því mengi hans, yfir sexý karlmenn. Hefði getað skaðað vinskapinn.

Allavega...þetta er góður strákur. Nýlega sagði hann mér að hann héldi að það væri meira en svo. Hann væri liklegast hommi. Hann væri ekki að finna löngun til kvenna.

Ég varð svolítið hissa. Þessi fyrrum höstlari dauðans.

Hann er þó jafn skemmtilegur og áður. Hommi eða ekki. Hann verður alltaf vinur minn. Hann er jafn heiðarlegur og einlægur og áður. Hann mun ávalt eiga stað í hjarta mér. Hommi eða kommi, eða hvorugt.

xxxxxx þú ert vinur minn og það mun ekki breytast.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband