Færsluflokkur: Dægurmál

Allsberjalyng

Ég hef kynnst mörgu fólki gegn um netið og af „öllum“ kynjum. Eitt sinn spjallaði ég við rúmenska stúlku, sem sagðist m.a. hafa skroppið til Íslands í 2 vikur. Var á faraldsfæti um heiminn.

Sagði vini mínum frá henni og hann spurði; er hún ekki bara úrsúla og átti þá við hvort hún væri ekki súludansmey.

Það veit ég ekki, sagði ég. Kannski bara.

Heyrði af henni síðar, þar sem hún var í Los Angeles og sannfærðist um að vinur minn hefði átt kollgátuna.

Hún væri súludansari.

Hún var að ferðast á eigin vegum í þeim tilhögunum, um heiminn þveran og endilangan. Enginn hafði hneppt hana í ánauð eða tekið af henni vegabréfið, eins og gerist þegar um mansal er að ræða. Hún var bara að ferðast um og þéna pening fyrir að glenna sig.

Því afskrifa ég alls ekki það sem Gullfingurinn segir um sína dansara; að það séu konur sem ferðist gjarnan milli landa til að glenna sig.

Er ekki alveg að sjá mansalsþáttinn í þessu. Mansal er ánauð. Þrældómur.

Ég er ekki að sjá að staðir uppi á yfirborðinu geti (þótt þeir vildu) stundað mansal. Mansal hlýtur alltaf að liggja undir yfirborðinu, þar sem um er að ræða ánauð og frelsissviptingu. Vegabréfssviftingar. Kannski einhverjar úrsúlur stundi vændi. Skal ekkert segja um það, en það er ekki sama og frelssissvipting og þrældómur, sé það þeirra val.


Hringrás blaðamennskunnar

Tveir eru þeir vefir sem mér gefur fundist skrítið að lesa. AMX og T24. Orðfærið hefur mér löngum þótt sérstakt og oft hef ég séð fyrir mér skotgrafir við lesturinn.

Forsvarsmaður T24 ku vera maður að nafni Óli Björn Kárason. Oft hef ég heyrt sama nafn nefnt í umræðu um AMX. Veit þó ekki hvað til er í því. Þó er ritstíllinn beggja vefja ekki ósvipaður.

Ég hef velt fyrir mér hvar ég hafi áður lesið greinar í sama stíl. Í dag fattaði ég hvar.

Ég áttaði mig á að þessi sami stíll var í hávegum hafður fyrir tæpri öld, í skotgrafahernaði alþýðunnar og auðvaldsins.Stíll uppnefna og níðs.

Hér er dæmi úr Alþýðublaðinu, þ. 29. nóvember 1918:


Eins er eðlilegt að auðvaldið, sem með stórum kostnaði heldur Einar Arnórsson til þess að skrifa í Mgbl., ætlist til þess af honum, að hann geri það sem vænst var af honum; en ætli að Einar fari ekki lengra en þeir bjuggust við, þegar hann fer svo langt, að neita því, að auðvaldið sé til, auðvaldið, sem allir vita að hefir keypt Morgunblaðið, og hefir lagt því til 250 þús. kr. (milljónarfjórðung), ráðið til blaðsins E, A. fyrir mikið hærri laun en ráðherrar hafa o.s.. frv. Og þetta alt í þeim tilgangi, að vinna á móti alþýðuhreyflngnnni, því, að sá er tilgangurinn vita allir. Já, ætli húsbændum hans Einars finnist hann ekki vera helzt til duglegur, ganga helzt til langt. Ætli engum þeirra hafi orðið á að raula fyrir munni sér:

„Bósi, geltu, Bósi minn,
en bíttu ekki, hundur“

 

Þetta er nákvæmlega sami ritstíllinn og á AMX og T24 hvar pólitískum andstæðingum er fundið allt til foráttu án þess að rökstuðningur liggi að baki, heldur tilfinningar einar.

Merkilegast þykir mér þó að Óli Björn og félagar hafi valið sér ritstíl sósíalista (kommúnista) fortíðarinnar. Kannski þeir séu svona miklir hægri menn að þeir séu komnir hringinn.

 

Maður spyr sig.

 


€vróvisjón

Nú hefur RUV tekið þátt í €vrópsku sönglagakeppninni í 24 ár.

Á þeim tíma hafa ýmsar leiðir verið farnar til að finna það lag sem keppa skal fyrir Íslands hönd hverju sinni.

Oftast undankeppnir, en stundum útvaldir fengnir til að semja lag.

Þegar útvaldir hafa fengið tækifærið hafa ekki heyrst önnur lög, en í undankeppnunum hefur fólki boðist tækifæri að heyra nokkur lög. Oftast hafa leynst ágætis lög inn á milli. Ég man ekki til þess að öll lögin hafi verið ónýt.

Fyrr en nú.

Mér finnst stórmerkilegt að 14 ónýt lög hafi verið valin úr þeim fjölda sem inn var sendur. Innsend lög hafa örugglega skipt hundruðum. Fimmtánda lagið var útvalið.

Mér þykir það sæta furðu að kannski öll 200 (eða eitthvað) innsendu lögin hafi verið ónýt. Þykir það ósennilegt.

Held að málið snúist um dómnefndina, sem enginn veit hvernig var skipuð.

Tek fram að sjálfur átti ég ekki lag, svo það sé á hreinu.

 

Í kvöld stendur þjóðin frammi fyrir erfiðu vali. Að velja skársta kostinn af mörgum slæmum. Hljómar eins og Icesave. Kannski það sé hlutskipti íslendinga að þurfa almennt að velja milli slæmra kosta.

 

Svona eins og við kjörborðið.


Hinn Haganlegi Arion banki

var að hlusta a Finn Sveinbjörnsson, í Kastljósinu í gær.

viðtalið var aðallega svona blablabla.

Hins vegar hjó ég eftir því að Finnur sagði að Högum hafi verið vel stjórnað. Spyrillinn fattaði ekki að spyrja á móti hví Hagar væru þá í meðferð. Minnti á RUV árið 1968, hvar velmektarmenn voru þéraðir, eða drottningaviðtöl hvar einskis óþægilegs er spurt

Halló! hví er þá kompaníið komið í klósettið?
Svo á auðvitað að dubba upp þá sem óku rútunni út af til að aka henni áfram.

 

Mig hefur oft dreymt absúrd drauma. ætli þetta sé einn slíkur?


Skjaldborgarfargan

Ég er svo til hættur að nenna að blogga. Nennuleysið hefur minnst með Hádegismóann að gera, heldur helst hve þjóðmálaumræðan er hefur verið svo súr lengi og súrnar með degi hverjum. Sagði við vinnufélaga minn í dag að best væri að fara í frí til BNA og fá ná sér í eðal ignorance. Hætta að hugsa um þetta eilífa karp.

Ormagryfjan opnast meira með hverjum degi og spillingin útrásarvíkinga og bankamanna orðin svo æpandi.

 

Annars heyrði ég í Spegli kvöldsins, af viðbrögðum ráðamanna við þeirri staðreynd að mikill meirihluti þeirra sem hafa þurft að nýta sér „úrræði“ ríkisstjórnarinnar, telja þau ekki virka.

Man ekki hvort það var sjálf Jóhanna af Örk, eða einhver annar, sem var svo obboðslega hissa á því. Eftir öll töfrabrögð Árna Páls og Joðhönnu. Botna bara ekki neitt í neinu.

Snillingarnir fatta ekki þá einföldu staðreynd að fólk krefst réttlætis. Jú, kannski barbabrellur Árna Páls lækki greiðslubyrði. Hins vegar lækka þær ekki skuldirnar. Bara fresta málum. Fólk er ósátt að þurfa að sitja uppi með auknar, stökkbreyttar skuldir.

Einfaldasti tréhaus ætti að sjá það.

Greinilega eru einhverjir með massívari höfuð en það, að þeir telja að allt verði í gúddí bara við að lengja í snörunni. Ekki að koma til móts við réttlætiskröfurnar, heldur að strjúka rassa látveitenda og  beita barbabrellum til að telja fólki trú um að það sé verið að gera eitthvað fyrir það.

Fólk er hins vegar ekki fífl og sér í gegn um vitleysuna.

 

En út í allt annað.

Vinur minn benti mér á þessa snilldarklippu. Vel til þess fallin að verða sér út um hinn besta hroll.

Ég er ekki frá því að hljómborðsleikarinn minni eilítið á íslenskan tónlistarmann, svona í útliti Wink


Frétt eða ekkifrétt

„Borgarstjóri búinn að kjósa“ Hvílík ekkifrétt.

Kring um 1990 lögðust málgögn flokkana af. Nú hefur málgagn Sjálfstæðisflokksins verið endurreyst. 

Hvað varðar almúgann um hvað gerist innan raða hrunflokksins?  Hverjum er ekki sama hvort Pétur, Páll, eða Hanna Birna hafi farið og kosið í hinum lokuðu kosningum einkavinafélagsins. Hvenær fáum við fréttir, á mbl, af kosningum innan Lyonshreyfingarinnar?

En kannski til lítils að fjasa yfir málgagninu. Alla vega hefur Moggin stimplað sig inn sem málgagn. Enda sá sem endurskrifar mannkynnssöguna þar við stýrið.

Pravda.

 


mbl.is Borgarstjóri búinn að kjósa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leiðindastjörnur æða til Haiti

Nú hafa bandarískar stjörnur tekið sig saman og vilja hjálpa íbúun Haiti.
Ekki mæli ég því mót, enda fólk þar hjálpar þurfi.

Ekki hef ég tölu yfir alla sem að málinu koma. Væntanlega í bland raunverulegar stjörnur og wannabies.

Sá í fréttunum áðan að Bruce Springsteen væri þar á meðal. Hugsaði þá, hverjir aðrir leiðindagaurar hefðu tekist að koma sér um borð í bátinn.

Að hlusta á jóðlið Í Brúsa er allt að því jafn leiðinlegt og að hlusta á Bob Dylan og Leoanrd Cohen. Svona næstum því.

Verum manneskjuleg og veitum Haitibúum stuðning!
Sendum ekki leiðindagaura þangað. Næg eru ömurlegheitin fyrir!


Lögregluhundurinn Rex

Er að horfa á austurríkismenn spila við serba.

Í hugum margra poppar Dolli upp þegar minnst er á Austurríki. Hann var víst þaðan. Hjá mér poppar alltaf upp lögregluhundurinn Rex.

Voða krúttlegt.


Réttlæti, sanngirni og heiðarleiki

Er ekki yndislegt að vera íslenskur ríkisborgari? Réttara sagt íslenskur gjaldborgari.

Nú er búið að bjarga fjármagnseigendum fyrir horn. Já og bönkunum. Bönkunum sem á sínum tíma veittu lán á útsölu og lánakjör sem áður ekki buðust. Ódýr lán, að því fólk hélt, sem almenningur nýtti sér til að greiða upp önnur og óhagstæðari lán. Lánakjör sem gerði fólki kleift að kaupa sér viðunandi húsnæði í stað þess sem skammtað var úr hnefa Íbúðalánasjóðs. Svo ég tali ekki um Verkamannabústaðina sálugu. Í nokkur ár lifði almenningur í þeirri trú að hann hefði gert sæmilegan díl og allir voru djollí.

Svo gerist að alltíeinu og obbossí, krónan fer að falla. Á þriggja mánaða fresti, árið 2008. Merkileg tilviljun hvað það hélst í hendur við ársfjórðungsuppgjörin. Stórmerkileg tilviljun. Allt í einu voru góðu ódýri lánin orðin stökkbreyttari en Teenage Mutant Ninja Turtles. Ekki síst „erlendu“ myntkörfulánin sem reyndust svo ekki erlendari en Jón Sigurðsson, forseti. Aftanítakan á krónunni varð ekki bara til að hækka þau, heldur einnig lánin sem tryggð eru með svokallaðri verðtryggingu. Gegn um hækkandi verðlag.

Mikið er ég glaður að bönkunum hafi verið bjargað. Auðvitað erum við tilbúin að horfa fram hjá hverjir báru ábyrgðina á „ódýru“ lánunum og stökkbreytingu þeirra. Er það ekki?

Reyndar má færa fyrir því rök að verðtryggingin sé réttlát, þar eð hún virki jafnframt á innlán í bönkunum. Þó er annar stór munur á réttindum þeirra sem lána bönkunum, með innlánum og þeirra sem fá lánað hjá bönkunum.

Sá sem leggur inn pening í banka lánar bankanum pening. Hann hefur enga tryggingu aðra en tryggingasjóð innlána fyrir að fá peningana sína til baka, eða réttara sagt lágmarksupphæð. Viðskiptamaður banka gæti aldrei sótt meira en það frá bankanum, eða þrotabúi hans.

Reyndar, í dag, með undantekningu neyðarlaganna eiga allar innlánstryggingar að vera tryggðar upp í topp. Neyðarlaganna sem almenningur nú bítur úr nálinni með, með Icesafe veseninu.

Hins vegar getur banki farið fram á veð fyrir því sem hann lánar út. Veð sem er í raun sýndarveð, því bankinn getur gengið að skuldaranaum langt umfram hið gefna veð. Fram á grafarbakkann og umfram það. Bankinn getur gengið að eignum sem aldrei komu til álita eða umræðu við lántökuna. Því síður að í þeim væri bundið veð. Eigandi innláns getur á hinn bóginn ekki gert slíkt gagnvart bankanum. Farið fram á að bankinn leggi fram veð fyrir innláninu. Hví ætti einhver ekki, á sama hátt, að geta krafið bankann um veð fyrir innláni? Spurning um að setja á stofn tryggingasjóð útlána og leggja af öll veð.

Nei bankarnir hafa lögbundin belti, axlabönd, kút og kork. Á meðan skuldarinn hefur í mesta lagi loftlausan kút.


Jafnræði? Einmitt.


Talað var um nýtt Ísland og að reisa ætti skjaldborg. Í raun hefur bara gamla rotna Ísland verið endurreist, með sínu maðkétna kerfi, klíkum og spillingu (eigum við að ræða Landsbankann?) og í stað skjaldborgar var reist myndarleg gjaldborg.


Ákveðið var að spóla bara til baka og spila sama gamla spillingarlagið aftur, í stað þess að setja eitthvað nýtt, ferskt og frumlegt á fóninn. Svona eins og í súru partýi þar sem allir eru nærri brennivínsdauða og í stað þess að slútta partýinu er opnuð enn ein flaskan og haldið áfram að sukka.


Réttlæti, sanngirni og heiðarleiki eiga að kallast hugtök. Á Íslandi eru þau hinsvegar einungis merkingar- og innihaldslaus orð.

Ómerkingar.

Ómerkingar eins og þeir einstaklingar sem töluðu um nýtt Ísland og skjaldborg um heimilin. Einstaklingar sem telja ekki í mannlegum mætti að vera menn orða sinna.


Erum á móti en viljum vera memm

þannig hljómar stefnuskrá vinstri grænna í stuttu máli.

Foringi flokksins er tækifærissinni norðan úr landi sem segir eitt í dag og annað á morgun.

Það kemur mér ekki á óvart að heyra í honum nú. Sá í gegn um hann fyrir löngu.

Hann vill ekki ganga í €vrópusambandið, en þó. Félagar hans vilja það ekki, frekar en aðrar trénaðar beljur, en hann vill halda öllu opnu því stóllinn er meira virði en samviskan.

 For your information, þá er ég hlynntur viðræðum við €vrópusambandið.


mbl.is Flokksráð ítrekar andstöðu VG við inngöngu í Evrópusambandið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband