Færsluflokkur: Dægurmál

Skattrannsóknarmenn á sjúkrahús

Fimm starfsmenn skattrannsóknarstjóra í Ungverjalandi hafa verið fluttir á sjúkrahús undanfarna daga, alvarlega veikir.

Vart hefur verið undarlegrar hegðunar starfsmanna Ungverska skattrannsóknarstjórans undanfarið. „Þeir hafa hagað sér kjánalega og tekið heimskulegar ákvarðanir“ segir Zoli Bikavér, stjórnandi hjá stofnuninni.

Þessir fimm starfsmenn hafa undanfarnar tvær vikur unnið að rannsókn á klámmyndaframleiðanda. Hafa þeir ekkert annað gert, í tvær vikur, en að horfa á svæsnar klámmyndir. Menn hafa velt því fyrir sér hvort og þá hvernig tengsl geti verið milli klámáhorfsins og ástands starfsmannanna. Nú virðist þó greining liggja fyrir. Starfsmennirnir þjást af alvarlegu vökvatapi.


mbl.is Klám í vinnunni tekur á
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bergmálstíðindi færa út kvíarnar

Eins og glöggum lesendum Bergmálstíðinda ætti að vera ljóst, hefur fjölmiðillinn þegar hafið úrtás sína, með útgáfu hins danska systurblaðs Bergmåletidende.

Bergmálstíðindi hafa ekki látið staðar numið þar, heldur hafa nú hafist tilraunaútsendingar myndfréttaefnis.

Þar sem einungis er um tilraunaútsendingar að ræða hafa engir fastir tímar verið ákveðnir, heldur verður sent út efni eftir efnum og aðstæðum hverju sinni. Mun hér verða fjallað um umræðu líðandi stundar í þjóðfélaginu.

Bergmálstíðindi hafa sett saman litla umfjöllun um eldhússstörf Hannesar Hólmsteins, sem farið hefur lítið fyrir hingað til. Það er stolt okkar og ánægja að vera fyrst til að sýna þessa skemmtilegu hlið þess þjóðþekkta manns. Þessi litla umfjöllun er jómfrúarefni nýstofnaðrar myndfréttadeildar samsteypunnar.

Njótið vel.


Semja við bréfdúfufélagið

Félag kaþólskra áhorfenda fordæmir auglýsingaherðferð Símans og mun félagið slíta öllum viðskiptum sínum við fyrirtækið. Félagið hefur um árabil keypt síma- og netþjónustu af Símanum.

Ástæðan fyrir umskiptunum er sögð vera sú að Síminn hafi með auglýsingum sínum, er vísa til réttarhaldanna yfir magister Galieo Galilei á 17. öld, varpað rýrð á kaþólsku kirkjuna, sem á sínum tíma fordæmdi fáránlegar hugmyndir hans um að jörðin væri ekki miðja alheimsins. Enda munu hugmyndir hafa stungið í stúf við hugmyndir kirkjunnar um sköpun heimsins (Sjá sköpunarsöguna í gamla testamentinu).

Eins og [elstu] mönnum er enn í fersku minni, var glæpahundurinn Galileo bannfærður fyrir vikið.

Því finnst félagi kaþólskra áhorfenda rétt að bannfæra Símann, alla þá er komu nálægt gerð auglýsingarinnar, sem og alla sem komu að fjármögnun hennar, viðskiptavini Símans. Reyndar er þar babb í bát einum, að sem viðskiptavinir Símans, hingað til, mun félagið bannfæra sjálft sig.

Reyndar mun Jóhannes Páll páfi annar hafa aflétt bannfæringunni, er hafði hrjáð Galileo í tæpar fjórar aldir. Félagið gefur lítið fyrir það og segist fordæma páfastól og mun slíta öll tengst við hann (þ.e. páfann. Ekki stólinn sjálfan).

Þar sem ljóst er að Síminn er innvinklaður í allt fjarskiptadreifikerfið hér, hvort heldur er í eigin nafni eða gegn um neðri skúffuna, Skipti, mun félagið hafa leitað til Bréfdúfufélags Íslands með sín fjarskipti.

Framkvæmdastjóri Bréfdúfufélagsins vildi ekki tjá sig efnislega um málið, en lét þó hafa eftir sér, „Kurr kurr.“


mbl.is Segja upp viðskiptum við Símann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Furður Laugardalsins

Nú hefur verið staðfest að tveir af fremstu fulltrúum hinnar íslensku furðutónlistarstefnu munu halda sameiginlega tónleika í Laugardal, síðar í þessum mánuði.

Söngkonan Björk og hljómsveitin Sigur Rós munu hafa í hyggju að byggja á þema þvottalauganna gömlu. Leikin verður þvottabrettatónlist með tilheyrandi þvottabalaslætti, segir í fréttatilkynningu.

Einnig mun umhverfis- og náttúruvernd koma sterkt við sögu. Mun Sigur Rós af því tilefni flytja nokkur af sínum þekktustu hvalaskoðunarlögum.


mbl.is Tónleikar Bjarkar og Sigur Rósar verða í Laugardal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geimsamstarfi bjargað

Eins og Bergmálstíðindi sögðu frá, hefur alþjóðlegt geimferðasamstarf verið í uppnámi, eftir að flókinn hátæknibúnaður geimsalernis bilaði. Talsvert var þrefað um lausnir í málinu og það var ekki fyrr en Rússneski geimfarinn Oleg Kononenko gekk í málið og gerði við salernið. Segir hann það ekki hafa verið neinn hægðarleik, en hafi tekist fyrir rest.

Oleg, sem þekktari er í heimalandi sínu fyrir ritstörf en geimferðir, sagði fréttaflutning af málinu hafa ekki verið nægilega skýran. Ástandið hefði í raun verið mun alvarlegra en fréttir gáfu til kynna. Að lokum sló hann fram vísukorni.

Eigi sé ég á það minnst
en um það tel mig vita,
að geimförunum gjarnan finnst
góð vera astralskita.

Nikolaj Ivanovich snaraði vísunni á íslensku.


mbl.is Geimsalernið komið í lag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimsk rannsókn

Hér er væntanlega átt við vitsmuni, þegar talað er um gáfur. Gáfur eru svo víðtækt hugtak. 

Eru það vitsmunagáfur eða aðlögunarhæfileiki skepna að læra að lifa samkvæmt umhverfi sínu?

Er hægt með svona rannsókn að setja samasemmerki milli 'gáfna' og lífslíka?

Ekki kemur fram í fréttinni í hverju skilyrðingarnar fólust sem flugurnar lærðu að laga sig að.

Ef við teljum til skilyrðingar sem hópar fólks hafa þurft að laga sig að og setjum í samhengi við lífslíkur, getum við fyrst nefnt þræla. Þrælar þurfa að laga sig að mjög skilyrtum lífsaðstæðum. Fólk almennt sem lifir við harðræði og í ótta. Fólk sem er meira og minna haldið streitu og ótta við að gera rangt og vera refsað. Það fólk er alls hvorki heimskara né gáfaðra en annað fólk, en geldur fyrir stöðu sína. Andlegt ástand hefur áhrif á hið líkamlega. Er skrýtið að fólk sem lifir við slíkar aðstæður lifi e.t.v. skemur en þeir sem eiga áhyggjulaust og notalegt líf? Ég held ekki. Ætli sama eða svipað gildi ekki um blessaðar flugurnar? Þegar þær eru neyddar til að lifa öðruvísi en þeim er eðlislægt.

Mér finnst alltaf jafn þreytandi að heyra af svona kjaftæðisrannsónkum.

Ég er hvorki þræll né líf mitt skilyrt af neinum, nema skattinum kannski. Merkir það að ég sé heimskur?


mbl.is Heimskar flugur lifa lengst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þekking Breta

Þegar forfeður nútíma Breta byggðu Stonehange, bjuggu þeir yfir mikilli þekkingu. Þeir kunnu að flytja stórgrýti um langan veg og hífa þau síðan upp. Ekki er enn vitað með vissu hvaða tækni þeir beittu þótt leiddar hafi verið að því líkur.

Einnig bjó þetta fólk yfir tæknilegum verkfærum eins og öxum og hnífum.

Engar höfðu þeir þó appelsínurnar. Hefðu þeir fengið appelsínur hefði þeim líklega fyrst af öllu dottið í hug að skera þær sundur, til að komast í innihaldið. Það er mun fljótlegra og snyrtilegra en að standa í afhýðingu.

Því miður virðist þekking fornbreta í meðferð hnífa hafa glatast, rétt eins og þekking þeirra á meðferð stórgrýta til mannvirkjagerðar.


mbl.is Mega ekki vera að því að afhýða appelsínur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svindl hjá saumaklúbbum

Neytendasamtök í nokkrum Evrópulöndum hafa tekið höndum saman til að stöðva svindl svokallaðra saumaklúbba, að því er greint er frá á fréttavef hins danska systurblaðs Bergmálstíðinda, Bergmåletidende. Umræddir saumaklúbbar munu vera tilbúnir 'skúffuklúbbar' kvenfélags í Kaupmannahöfn.

Mun vera um að ræða að fólki er boðin aðild að klúbbum gegn því að mæta með randalínur og kleinur. Síðan mun bakkelsið hverfa og fólki vísað frá á þeim forsendum að það hafi ekki mætt með bakkelsi. Dönsku neytandasamtökin segjast hafa fyrir því áræðanlegar heimildir, að umrætt bakkelsi hafi síðan verið selt á Basar kvenfélagsins við Norrebro. Verði háttsemin ekki stöðvuð segjast samtökin munu höfða mál á hendur kvenfélaginu.


mbl.is Svindl hjá sumarfrísklúbbum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Homm í kvöld?

Var að heyra í góðum vini mínum. Við djömmuðum mikið saman á æskuárum, áður en fjölskyldupakkinn handjárnaði okkur. Þá var sko tekið á'ðí um hverja helgi. Bæði kvöldin. Nú er maður bara afdankaður miðaldra njóli sem gerir aldrei neitt skemmtilegt og hann, þessi fyrrum höslari dauðans, orðinn hommúnisti.

Var að heyra í honum áðan og er, þrátt fyrir svefnskort, að hugsa um að skella mér í bæinn með honum. Bara taka á'ðí. Vona samt hann fari ekki að draga mig á einhvern leðurhommastaðinn LoL

hehe neinei, hann er alveg eðal og sannur vinur Smile alveg 100%


Dagurinn í dag

Var ansi hreint fínn. Skrítið hvernig hlutirnir gerast stundum á réttum tímapunkti.

Síðastliðið haust slitum ég og kærastan fyrrverandi okkar sambandi. Samband sem hafði verið on/off í þrjú ár. Mikill kærleikur og ást en einhvernvegin var okkur ekki ætlað að vera saman. Síðan þá hefur ýmislegt gengið á. Tilfinningarússíbanar og allar græjur, á báða bóga. Þó höfum við einhvernvegin alltaf borið kærleika hvort til annars. Við höfum þurft að vera í sambandi, með tölvupósti, vegna eignaskipta. Við höfum þó hvorugt treyst okkur til að hittast, af ótta við að tilfinningarússíbaninn færi af stað. Þráhyggjan, afbrýðisemin og allur sá pakki. Hún að deita aðra og ég aðrar, eins og gengur. Veltum þeirri spurningu fyrir okkur hvort okkur tækist að vera (bara) vinir.

Síðan ákváðum við í vikunni að hittast í dag og ganga frá afsali vegna hússins sem við áttum saman og hún hefur keypt af mér.

Í stuttu máli sagt voru þessir endurfundir alveg æðislegir. Kærleikur og væntumþykja. Ekki til afbrýðisemi eða þráhyggja. Á leiðinni til frænku hennar, sem er löffi og sá um afsalsgerðina, blastaði hún Pál Óskar í bílnum og við sungum með. Eftir afsalsfarganið bauð hún mér á sýningu og svo skelltum við okkur í sund. Síðan bauð ég henni að borða og svo fór hver sína leið. Bara hreinn og klár vinskapur, eins og hann á að vera.

Mikið er ég glaður að hafa eignast þessa 'nýju' vinkonu.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband