Sake - Aðvörun!

Ég var í heimsókn í gærkvöldi hjá kunningja. Í húsi sem ég hafði ekki komið í áður. Hvað um það.

Haldiði ekki að maðurinn dragi fram svaka fínt austurlenskt glasasett og ætlar að bjóða mér sake. Sake mun vera Japanskt hrísgrjónavín. Án þess að orðlengja frekar, er það einn mesti viðbjóður sem ég hef látið upp í mig.

Þar sem ég vissi ekki leiðina á salernið, hljóp ég að útidyrunum. Ég rétt komst í dyrnar þegar ég spýjaði. Því vil ég koma þeirri ábendingu til þeirra sem enn eru svo heppnir að hafa ekki smakkað sake, að halda því óbreyttu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Einhverntímann á sokkabandsárunum drakk ég sake, minnist þess bara að það er drukkið heitt.  Man ekki bragðið.  Eins gott kannski

Jenný Anna Baldursdóttir, 4.5.2008 kl. 21:43

2 identicon

nú jahérna já. Okey þá þá bara ekki til hamingju með ammóið :) gleðilegan daginn í dag bara :) heheh

Ingunn Valgerður Henriksen (IP-tala skráð) 5.5.2008 kl. 00:16

3 identicon

JAHÉRNA HÉR!!!!   á dauða mínum átti ég von, ekki að það væri til áfengi sem að þú kæmir ekki niðrí þig, Brjánn, þetta er alheims hneiksli, ég hef oft smakkað þetta og þetta er alveg ok, hefur hann i ekki bara verið að gefa þér rottu eittur?

steini tuð (IP-tala skráð) 5.5.2008 kl. 14:13

4 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

kannski var þetta bara rottueitur. af bragðinu að dæma getur það susum vel verið. mér verður flökurt við tilhugsunina og ég finn enn óbragðið við tilhugsunina

Brjánn Guðjónsson, 5.5.2008 kl. 14:24

5 Smámynd: Tiger

Hahaha .... eins gott að passa sig bara. Ég hef aldrei smakkað þetta en ég er nú kannski ekki beint mikið fyrir að smakka hitt og þetta í fljótandi formi, held mig við bjór þegar ég ferðast og vodka/bjór blöndu hérna heima á fjögurra ára fresti eða svo ... Knús á þig ljúfi SakeBoxer.

Tiger, 5.5.2008 kl. 17:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband