Hugmyndin er góð en útfærslan ónýt

Allt gott og gilt með að reyna að sporna við barnaperrum. Ég tek undir alla viðleitni í þá átt.

Hvað varðar hluta fréttarinnar er varðar þá sem skutla börnum í íþróttatíma, finnst mér steininnn taka úr.

Ég á strák sem spilar körfubolta og iðulega þegar hans lið á að spila utan höfuðborgarsvæðisins fara í gang póstsamskipti milli foreldra um hver geti skutlað hverjum.

Ætti að fara að blanda einhverju ríkisapparati í það, myndi enginn skutla neinum. allt myndi koðna niður í eftirlitsnefndum. oftast er fyrirvarinn stuttur meðan nefndarfyrirtökur taka vikur.

Þessi lög tjallanna voru greinilega sett af fólki sem ekkert veit um málið. Fólki sem komið er vel yfir fimmtugt og hefur gleymt hvað er að eiga börn í íþróttastarfi.


mbl.is Gagnrýna lög gegn barnaníðingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Köttur í vanskilum

Mófreður von KattSkilanefnd Kaupþings lýsir er eftir kettinum Mófreði.
Mófreður er rauðhærður og oftar en ekki íbygginn á svip.

Hann mun vera skuldari við bankann og í bullandi vanskilum. Síðast sást til Mófreðs í Dýrabæ, hvar hann mun hafa fengið lán til kaupa á kattamat, með veði í kattamatnum.

Sá er hefur uppi á Mófreði er beðinn að hringja í sérstakan kattsóknara.


mbl.is Hundur týndur í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórhættulegt knús á almannafæri

Það er orðið all svart þegar menn mega ekki láta vel að börnum sínum. Án þess ég viti neitt um mál ítalans, ímynda ég mér að ekkert ósæmilegt hafi farið fram, þarna á sundlaugarbakkanum með móðurina og fjölda fólks viðstatt.

Í fyrsta sinn í mörg ár, skellti ég mér á fótboltaleik í dag. Þar hitti ég ástkæra dóttur mína. Unglingurinn var þar með vinkonum sínum. Þegar hún sá mig breiddi hún út faðminn, rétt eins og ég. Í miðjum mannfjöldanum féllumst við í faðma og ég kyssti hana á vangann.

Mikið er ég feginn að leikurinn fór ekki fram í Brasilíu.


mbl.is Handtekinn fyrir að kyssa dóttur sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hjartatilfellum fækkar

„Samkvæmt nýrri skýrslu, sem kynnt var á ráðstefnu hjartasérfræðinga í Brussel í Belgíu í dag, hafa strangari reglur um reykingar fækkað hjartatilfellum í Evrópu umtalsvert.“

Hvað eru hjartatilfelli? Væntanlega tilfelli þar sem hjörtu koma við sögu.
Ekki fylgir fréttinni um hverskonar hjartatilfelli er að ræða, né á hvaða hátt téðir hjartasérfræðingar eru sérfróðir um hjörtu.

Því kemur margt til greina.

Einn möguleiki er sá að fækkun hafi orðið á góðhjörtuðu fólki og því færri tilfelli hjartgæsku en áður. Þar sem ég tel engin tengsl vera milli reykinga og hjartgæsku ætla ég því að útiloka þann möguleika.

Engum sögum hefur farið af fækkun nýbura og því ólíklegt að þeim elsku hjörtum fari fækkandi. Afskrifa því þann möguleika líka.

Hjartatilfelli

Grunur minn er sá að ekki séu einungis tengsl milli reykinga og hjartatilfella, heldur einnig að hjartasérfræðingarnir tengist hvoru tveggja.

Því kemur aðeins eitt til greina. Hjartaknúsarar. Hjartaknúsarar eins og Bo Halldors, Geir Ólafs og Tom Jones.

Líklega troða þeir sjaldnar upp eftir að reykingabann á skemmtistöðum tók gildi. Kannski aðdáendur þeirra séu upp til hópa reykingafólk og aðsóknin því farið minnkandi.

Sem hjartaknúsarar hafa þeir valdið ómældum hjartabráðnunum um dagana. Hjartatilfellum. Sem slíkir eru þeir vissulega hjartasérfræðingar.

 


mbl.is Miklu færri hjartatilfelli í kjölfar reykbanns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undir hælnum

Við lestur fréttarinnar af manninum sem fékk góðfúslegt leyfi eiganda eiginkonu sinnar til að taka sjálfstæðar ákvarðanir var þessi Fóstbræðraskedds það fyrsta sem upp kom í hugann.


mbl.is Fær að syngja í kórnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggvinir

Ég man eftir ákveðnu blæti sem heltók blogheima fyrir rúmu ári. Þá voru allir að taka til á bloggvinalistanum sínum og henda úr fólki. Þá líklega bloggurum sem það sjálft ekki las.

það sem fólk kannski spáði ekki í er að bloggvinasambandið virkar í báðar áttir. Þ.e. að þótt A lesi ekki blog hjá B, getur verið að B lesi blogg A.

Sjálfur hef ég verið á blogginu í ca 1,5 ár. Ég hef sent örfáar vinabeiðnir en megnið af mínum bloggvinum hafa sent mér beiðni. Enda er ég óferjandi gapuxi.

Ég les ekki öll blogg allra á hverjum degi. Þá gæti ég ekki sinnt starfi mínu.

Það að hafa bloggvini snýst nefnilega ekki bara um það að lesa þeirra blogg, heldur ekki síður að þeir hafi sjortkött á mitt blogg.

Ég á einhvern helling af bloggvinum. Les blogg þeirra mis oft og mis vel. Sumir eru í gríninu, aðrir í alvöru þjóðmálanna. Sumir vel skrifandi og vel máli farnir en aðrir ekki. Bjútíið við flóru mannlífsins.

Ætla ekki að fremja upptalningu.

Munum bara að bloggvinassambandið er tvíbent.

 


Ali and G

Nú hefur leyniþjónustan í Gabon afhjúpað sjónvarpsstjörnuna Ali G.

Í stað þess að vera að undirlægi Sacha Baron Cohen mun umrædd persóna vera að undirlagi Ali B.

„Alibi,“ eins og sagt er  á ensku.

Því er stóra spurningin. Hvar eru Ali C og Ali D?


mbl.is Óeirðir eftir sigur Ali B
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Great balls of fire

Nathan Lewis skrifar grein í Huffington Post. Þótt ég hafi ekki fundið hana, þrátt fyrir leit. Vísir hafði ekki fyrir að setja tengilinn í fréttina. Því gæti fréttin allt eins verið innanhússhugarburður Vísismanna.

Ekki þekki ég téðan Nathan en ömmufrændi hans, Jerry Lee, kunni að spila á píanó og að leggja lag sitt við barnungar stúlkur. Hann flutti meðal annars lagið „Great balls of fire“ sem myndi á ylhýra útleggjast sem „Frábæru eldeistun.“

Já blóðrennslið þangað niður var alla tíð í góðu lagi hjá þeim gamla.

En hvað Nathan, ömmufrænda varðar, þá hef ég ekki hugmynd um hann. Tengist hann nokkuð kompaníinu Nathan og Olsen? Innflytjanda Cocoa puffs.

Hér þarf að lesa milli línanna.

Eitthvað „puffy“ við kakóið hjá öðrum þeirra og eitthvað við eldeistun hjá hinum.
Huffington post/Puffington post. Skyldi vera samhengi?

Æ, vil ekki hugsa þetta lengra, en endilega...lesið netmiðlana.

 


Farið varlega í að treysta Google þýðingavélinni.

Vitanlega verður útkoma þýðingarinnar ekki alltaf málfræðilega rétt, en dugar kannski til að merking textans skili sér.

Eða er það? Ekki alltaf.

http://translate.google.com/translate_t?prev=hp&hl=en&js=y&text=Ég%20er%20hoppandi%20kátur&file=&sl=is&tl=en&history_state0=#

Þannig að líklega er betra að treysta henni ekki um of.


Njóli Ingvarsson, borgarfulltrúi D lista segir...

Man bara ekki nafnið hans. 

Leitaði að téðum borgarfulltrúa, á reykjavik.is, en fann ekki. Fann þó þar aðra facebook-fulltrúa.

Hr. Ingvarsson segir, í viðtengdu viðtali (ca 3/4 tímans) að Nasa tengist ekki skemmtanalífi borgarinnar og hafi ekki gert síðan það var Sjallinn.

Var maðurinn í sveppatínslu?

Staðurinn (Nasa) er með dansleiki um hverja helgi. Stundum hljómsveitir, en þó ekki alltaf. Stundum bara dansiböll. Pallinn heldur sín reglulegu eðalböll á Nasa. engin hljómsveit þá. Bara plötuspilarinn.

Held að Hr. Ingvarsson ætti að taka sér laaaaaaangt frí og helst að snúa ekki aftur.

Hann veit ekki rassgat um hvað hann talar.

Er ekki hægt að koma manninum í malbikunarvinnu? Hann kann svo sannarlega að malbika.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband