Þriðjudagur, 11. ágúst 2009
Nýja Ísland
Var vinsæll frasi í vetur. Svo vinsæll að stjórnmálamenn gerðu hann að sínum. Ekki síst í aðdraganda kosninganna.
Lítið hefur farið fyrir nýja Íslandi síðan. Skjaldborgin varð tjaldborg og síðan gjaldborg.
Í dag var svo endanlega staðfest að nýja Ísland var lítið annað en orðin tóm, þegar gamlir pólitíkusar voru endurunnir í bankaráð Seðlabankans. Þar á meðal er maður að nafni Ragnar Arnalds. Gott ef hann hefur ekki dvalið innan veggja bankans í einhver ár. Líklega líkar honum það prýðilega. Ekki ætla ég að tjá mig um störf hans þar.
Fyrir 28 árum var hann fjármálaráðherra íslendinga og sló lán í Bretlandi upp á 35 milljónir punda, á 13% vöxtum. Lánið er kúlulán, eins og vinsæl eru þessi misserin. Lánið hefur ss einn gjalddaga, árið 2016.
Það er skemmtileg tilviljun að það ber upp á sama ár og til stendur að byrja að greiða Icesafe, sem er einmitt í boði fyrrum flokksfélaga Ragnars í Alþýðubandalaginu. Svavars Gestssonar.
Í dag er fólk að hafa áhyggjur af að íslendingar geti ekki staðið undir Icesave skuldbindingum. Þá gleymist gjarnan Barnalánið hans Ragnars, sem í dag stendur líklega í rúmum 2,5 milljörðum punda. Sem gera hva...eitthvað milli 500 og 550 milljarða króna. Sem NB eiga að greiðast í einu lagi.
Svei mér þá ef ég verð ekki að éta strax ofan í mig upphafsorð mín, um að nýja Ísland séu orðin tóm. Þvert á móti. Árið 2016 fáum við líklega glænýtt Ísland. Ísland skuldabyrða og fátæktar sem aldrei fyrr.
Kannski það muni bara þykja nokkuð vænlegt þá, að yfirgefa landið og flytja til Kúbu eða N-Kóreu?
![]() |
Kaffisamsæti flokksgæðinga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 10. ágúst 2009
Menningarhelgi
Helgin var menningarleg. Menningarvitarnir ég og vinkona mín hófum menningargönguna á föstudagskvöldinu. Þá kíktum við í menningarsögulega gay-gönguför, hvar Baldur Þórhallsson fór á kostum.
Bæði er maðurinn vel að sér og ekki síður er maðurinn svo skýrmæltur að þrátt fyrir flugvélar fljúgandi yfir þá skildi maður allt sem sagt var. Mjög áhugavert að fá innsýn í þann hluta borgarmenningarinnar sem legið hefur í argandi þagnargildi.
Fórum ma inn á níuna (hegningarhúsið) og sáum þar dómssal, sem er friðaður. Lítur út eins og í upphafi aldarinnar þegar maður var þar dæmdur í fangelsi fyrir hommaskap. Sá fyrsti og eini.
Splæst í flatböku og haldið heim. Síðan vaknað seint og um síðir, en þó tímanlega til að taka þátt og sýna stuðning sinn við sjálfsagða mannréttindabaráttu.
Fórum, ásamt vini mínum í bæinn. Ætluðum að koma við hjá kunningjum hans, sem við gerðum. Þeir voru í íbúð með eðal útsýni yfir laugaveginn. Ákváðum að horfa á bara á gönguna í þetta skiptið. Gangan verður sífellt stærri með hverju árinu. Ég er sannfærður um að fremsti hluti hennar var kominn niður á torg áður en sá aftasti lagði af stað.
Eftir að hali göngunnar var kominn framhjá, löbbuðum við af stað. Vorum samt örugglega 40 mínútur að labba niðureftir. Svo tók við hin skemmtilegasta dagskrá. Sama hvert maður leit. Allsstaðar voru brosandi andlit. Enda segi ég það enn og aftur. Svo lengi sem maður ætlar bara að dansa og er ekki í neinum höstlfíling þá er best að fara á gay-barina. Þar er aldrei neinn með vesen. Bara jákvæðni og fólk með eitt að markmiði. Að skemmta sér.
Svo var farið á Pallaball, eins og vera ber. Það var awsome. Nema hvað? Alltaf stuð á Pallaballi. Dansað af sér böttið og síðan gengið út í rigninguna.
Klikkaði samt alveg á að taka myndir á Pallaballinu. Var bara of upptekinn í dansinum.
Helginni lokað með maraþon-frostpinnaáti og letikasti yfir menningarlegri dagskrá RÚV.
alveg eðal.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 4. ágúst 2009
Mannlegur máttur
Félagsmálaráðherra tekur aldeilis stóran upp í sig. Segir ekki í mannlegu valdi að geta afskrifað skuldir heimilanna. Þrátt fyrir að kerfið sem orsakar skuldir heimilanna sé mannanna verk.
Nei, það er víst ekki í mannlegu valdi að tjónka við kerfið. Líklega er kerfið bara eitt af náttúrulögmálunum og ég bara svona vitlaus að sjá það ekki.
Er þá ekki spurning, meðan ríki og kirkja eru enn eitt, að fá biskupinn í málið? Kannski hann geti togað í spotta almættisins og gert eitthvað í málinu?
Það virðist deginum ljósara að það er ekki í mannlegu valdi.
Amen.
Semsagt. Meðan gapuxinn Jón, sem var ávallt flottur á'ðí, tók 20 milljóna gjaldeyrislán fyrir sinni íbúð, sem stendur nú í ca 40 milljónum, meðan Gunna, hin varfærna, tók 20 milljóna verðtryggt lán sem stendur í ca 23 milljónum. Þá fær gapuxinn Jón afskrifaðar...hvað...tuttugu milljónir, meðan Gunna fær afskrifaðar þrjár?
Aldeilis fín jafnaðarstefna. Já og réttlætið drýpur af hverju strái.
Sunnudagur, 2. ágúst 2009
Afhommun
Þeir í Brasilíu taka á því er einhverjir sérfræðingar auglýsi afhommun. Slíku er ekki til að dreifa hérlendis.
Hér fá gapuxar að blaðra um afhommun, milli þess sem þeir hala inn peningum til handa ésú.
málið er bara að stilla á Omega, afhommast og borga. málið dautt.
![]() |
Bannað að bjóða upp á lækningu við samkynhneigð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 30. júlí 2009
Þetta er hætt að vera fyndið
Í vetur frestaði AGS afgreiðslu láns til íslendinga. Þá var gefin sú skýring að stjórnmálaástandið væri í óvissu. Síðan var því frestað vegna óvissu um uppgjör bankanna, muni ég rétt. Síðan, núna, vegna Icesafe.
Hvað ástæðu tína þeir til næst?
Þetta er tómt rugl. Réttast væri að gefa þessum bjánum fingurinn.
![]() |
Afgreiðslu AGS frestað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Fimmtudagur, 30. júlí 2009
Hver eru tengsl útgáfuréttar og áleggs?
Spyr sá er ekki veit.
Viðtengd rétt fjallar um þras vegna útgáfuréttar á lagi og meintum stuldi á flautustefi einhvers skátaforingja.
Svo endar fréttin á bráðnauðsynlegum upplýsingum um ástralska áleggið vegemite og vitnað í söngtexta. Hvernig það tengist efni fréttarinnar, um uppruna og útgáfurétt, að öðru leiti er mér hulin ráðgáta.
Nær hefði verið að upplýsa mörlandann um hvort hið ástralska vegemite líkist breska viðbjóðnum mermite?
![]() |
Stolin stef í Ástralíu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 17. júlí 2009
Allir voru á móti
Samkvæmt þessari frétt voru allir á móti. líka þeir sem voru með. 37 gegn og 26 á móti.
aldeilis saltað mál þar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Fimmtudagur, 16. júlí 2009
Til hamingju Ísland
Fyrsta skrefið.
Margir hafa sagt að aðild að sb sé það versta. Er það? hvað er verra en þegnar Bretlands upplifa?
Að borða ógeðslegar pylsur á morgnana og að borða Mermite, sem er viðbjóður.
Bjögum bretum frá ógeðinu. Bjóðum þeim ýsu og hamsatólg.
![]() |
Samþykkt að senda inn umsókn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Fimmtudagur, 16. júlí 2009
Útvarp Óli Palli
Ætlaði að blaðra aðeins um útvarp, en Óli Palli varð að fá að vera með í fyrirsögninni því hann kemur við sögu.
Ég skrapp áðan í smá bíltúr og hlustaði á útvarpið á meðan. Einu stöðina sem spilar danstónlist. Flass 104,5. Heyrði þar lag sem ég kannaðist við en veit ekki hvað heitir né hver flytur. Það er nefnilega þannig með mig að ég man vel lög, en legg mig sjaldan fram við að muna heiti þeirra eða nöfn flytjenda.
Lagið hafði ég heyrt á þeirri stöð sem ég hlusta hvað mest á; Megastacja kanal Trance, sem er pólsk. Ég er sumsé danstónlistarfíkill og þegar kemur að danstónlist eru austur evrópskar stöðvar helst að standa sig. Hlusta líka stundum á eina ungverska stöð, en man ekki nafnið á henni. Hún er búkkmörkuð á tölvunni í vinnunni. Einnig eina rúmenska sem er nokkuð góð. Radio Pro-B.
Það virðist koma í tímabilum, hversu skemmtileg tónlist er í gangi. Eitt árið getur verið drekkhlaðið af skemmtilegum lögum, meðan hið næsta inniheldur tóm leiðindi. Var að hlusta á íslenskt útvarp. Ég fór að hugsa; svakalega er leiðinleg tónlist í gangi þessi misserin. Svo fattaði ég að ég var með stillt á Rás 2. Útvarp Óli Palli, þar sem eru tveir þættir á dagskrá. Poppland á daginn og Rokkland á kvöldin. Ég viðurkenni að ég hlustaði á þessa stöð síðustu þrjá daga. Enda má maður ekki einangra sig. Þessa þrjá daga heyrði ég eitt lag sem mér heyrðist ekki innihalda gítar. Enda hljómsveitin nógu fræg til að komast gegn um gítarnálaraugað. Annars hefur mér fundist eins og það sé skilyrði að lag fáist spilað á þeirri stöð að það innihaldi gítar.
En hvað um það. Nú ætla ég að opna WinAmp-inn og tjúna á pólsku stöðina. Syntar og aftur syntar. Engir gítarar. Þeir eru svo mikið 1967.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 16. júlí 2009
Hvað er þetta með Davíð Oddsson
Afdankaður fyrrum einræðisherra Sjálfstæðismanna, röflar og hálf þjóðin leggst á hliðina.
Hvað er málið?
![]() |
Davíð Oddsson setti Skjáinn á hliðina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)