Færsluflokkur: Bloggar
Mánudagur, 3. nóvember 2008
Nýi Brjánn
Ákveðið hefur verið að stofna Nýja Brján Guðjónsson, undir nýrri kennitölu, með aðstoð klónunardeilda bankanna.
Hinn nýi aðili, Nýi Brjánn Guðjónsson, mun taka yfir allar eignir gamla Brjáns, þ.m.t. dósasjóðnum.
Eftir gjörninginn mun gamli Brjánn verða lagður niður með öllum sínum skuldum og hinn nýi mun svífa vængjum þöndum.
Kær kveðja úr sukkinu.
Nefndin.
![]() |
Kaupverðið á 365 6,4 milljarðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 3. nóvember 2008
Eldfim apparöt
Farið hefur framhjá fæstum hve eldfimi vélknúinna apparata, þá helst farartækja, hefur aukist á undanförnum vikum.
Um er að ræða ráðgátu sem færustu sérfræðingar hafa mikið velt fyrir sér. Helst er talin orsökin að er hitna fari undir eigendum geti það aukið á íkveikjuhættu. Til að kveikja eld þurfi nefnilega eldsneyti, súrefni og hita.
Bifreiðar hafa hingað til verið í mestri áhættu hvað þetta varðar. Þó virðist sem bátar séu einig að koma sterkir inn.
Leó Löve, sérfræðingur í eldvörnum, segir í samtali við Bergmálstíðindi að líklega muni reiðjól og línuskautar bætast í hópinn fyrr en varir. Einnig að skellinöðrur séu að bætast í áhættuhópinn ásamt sláttuvélum.
Bensínkveikjarar virðast, enn sem komið er, ætla að sleppa.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 2. nóvember 2008
Þráhyggja Joðs?
Ég var að enda við að horfa á Silfrið, á netinu. Steingrímur Joð talaði þar vítt og breytt. Ég get alveg kvittað undir margt sem hann sagði. Norrænt velferðarþjóðfélag og blandað hagkerfi.
Málið barst að norsku krónunni. Hann talaði um að það væri nærtækasti kosturinn og játaði einnig að það myndi hafa í för með sér skert sjálfstæði.
Halló! Er hann ekki einmitt hvað mest á móti vrópusambandsaðild á þeim forsendum, að það skerði sjálfstæðið?
Hvað er þá málið? Er betra að ganga Noregskonungi á hönd en lýðræðislegu vrópsku samfélagi?
Maðurinn er ekki samkvæmur sjálfum sér. Er hann kannski haldinn and-vrópu þráhyggju? Eða bara lýðskrumari?
![]() |
Vill að kosið verði í vor |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (30)
Sunnudagur, 2. nóvember 2008
Kaupum íslenskt
Kaupum íslenskt. Herðum sultaról. Herpum görn.
Það er ekki alltaf hægt. Ég hef ekki marga kosti þegar kemur að því að kaupa bensín. Eða þegar ég kaupi pasta.
Þegar ég sé innlent vs útlent. Ég skoða kílóverðið. Innlent tapar oftast fyrir innfluttu. Ég hugsa um budduna mína. Ég kaupi það sem er hagstæðara, þótt það sé útlenskt.
Kannski ég ætti að kaupa sviðahausa, frekar en pasta.
Er kindakæfa, lifrarpylsa og hnoðmör samkeppnishæf við útlönd? Ég spyr.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Laugardagur, 1. nóvember 2008
Vér mótmælum allir! .....Nema ég
Eftir fund með sjálfum mér og sófanum, varð niðurstaða sú að ég ætti ekki heimangengt í dag. Byggi ég á Arnarhóli 1 með þeim Boga og Örvari hefði ég kannski tekið þátt, út um gluggann.
Á undanförnum misserum hef ég fengið staðfest að landsmenn eru ekki afkomendur manna frá Noregi, nema að litlu leiti. Við erum fyrst og fremst afkomendur þræla. Írskra þræla líklega. Þrælseðlið er svo ríkt í okkur. Ég er þar auðvitað ekki undanskilinn, svo því sé haldið til haga.
Fyrir nokkrum dögum voru mótmæli í Róm. Þar mættu þrjár og hálf milljón. Ítalir telja sextíu milljónir, svo þar voru samankomin 5,8% þjóðarinnar. Til að jafna það þyrftu íslenskir mótmælendur að ná átján þúsundum.
Hve margir nenna að mótmæla? Kannski hundruðir.
Reyndar er athyglisvert, að nú nefnir Mogginn hærri tölu þáttakenda en Vísir. Þ.e. Mogginn segir ca þúsund en Vísir segir meira en sexhundruð. Miðað við talningu lögreglunnar eru það kannski um þrjú þúsund.
Já, mótmælin. Taka menn ekki Mólótov, tómata og eggjabakka með sér? Nei. Bara skilti, húfu og vettlinga. Svo mæta einhverjir útvaldir búðingar í pontu og rausa. Allt svo settlegt og fínt.
Hmm, mælendalisttinn er....eitthvert fólk sem enginn þekkir. Jú, er svo ekki formaður Sandskötunnar mættur!!
Stulli Jóns og flautukórinn er með. Þá er kannski von að eitthvað gerist. Kannski egg og gaz?
Samt segir mér eitthvað að ekkert muni gerast. Fólk kemur saman, í vettlingunum sínum, hlustar á geldar ræður. Klappar og fer síðan heim og horfir svo á CSI í kvöld. Mætir svo í vinnu á mánudag, sem enn hafa vinnu, tala um hve kalt hafi verið í bænum. Hvernig skuli baka kleinur, eða búa til sultu.
Ekkert gerist og ekkert breytist. Hey!! Annar mótmælafundur að viku! Eins og að bregða sér í bíó.
![]() |
Um þúsund mótmælendur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 31. október 2008
Flotta Þorgerður
Ég hef aldrei kosið Sjálfstæðisflokkinn. Reyndar er fátt sem bendir til að það breytist. Allavega ekki í bráð. Kannski er um að kenna uppeldinu. Pabbi minn var haldinn mikilli vinstri slagsíðu, eins og einn bloggari orðar það.
Þó er ég hægrisinnaðri en gamli. Ég hef skilgreint mig sem hægri krata eftir að ég komst að því hvar ég stæði og hvað ég vildi, eða vildi ekki.
Ég er til að mynda hlynntur því að skoða af alvöru kosti þess og galla að ganga í Evrópusambandið. Hefja viðræður og sjá hverju þær myndu skila. Ég nenni ekki þessum sandkassaleik og skotgrafahernaði sem hér hefur tröllriðið mönnum og músum.
Ég er líka á þeirri skoðun að ríkisfyrirtæki, eins og RÚV, sem hefur skilgreind menningarleg markmið og öryggisleg, eigi að vera að vasast á almennum auglýsingamarkaði. Mér finnst að slíkt fyrirtæki eigi að sinna sínu hlutverki og vera bara á fjárlögum. Einkamiðlarnir geti svo séð um að mata lýðinn á amerískri froðu og öðru taði fyrir almúgann sem á sér ekki líf. Fjármagnað það með auglýsingum um allskyns óþarfa fyrir hinn sama lýð, sem á sér ekki líf.
En að pólitíkinni. Sjálfstæðisflokkurinn virkar ekki sexý á mig. Hann er uppfullur af gömlum menntaskólavinum sem setja sér það helsta markmið að hygla hver öðrum og klóra hvers annars bak. Menn mega alveg gera það, í sínum frítíma, en þeir eru ekki á launaskrá hjá mér til þess. Þeir eru ekki að sinna starfi sínu og ég get ekki einu sinni rekið þá, fyrr en eftir 2,5 ár!!
Að sama skapi vilja þeir hvorki sjá né heyra neitt sem kallast Evrópusamband. Auðvitað ekki. Það myndi ógna bræðralaginu sem þeirra tilvist byggir á.
Þó er gullmoli í fjóshaugnum. Skynsöm, hugsandi kona. Kona sem hefur bein í nefinu og er ekki haldin þeirri meðvirkni gagnvart ónefndum manni, sem hinir í flokknum þjást af. Hún kemur fram eins og hún er klædd og segir það sem henni finnst. Vitanlega er ég að tala um Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttir. Þurfti ég nokkuð að taka það fram?
Það hefur reyndar hvarflað að mér hvort hún væri ekki í röngum flokki. Kannski er þó betra að hún sé einmitt í þeim flokki sem hún er. Kannski henni takist að smita út frá sér heilbrigðri hugsun til annara flokksmanna. Ekki veitir víst af.
Fyrst steig hún fram og talaði í raun fyrir að hefja Evrópuumræður. Núna nefnir hún þann möguleika að taka RÚV af auglýsingamarkaði.
Hún virðist taka hagsmuni fjöldans fram yfir sína eigin, eða einkavina sinna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Föstudagur, 31. október 2008
Myndband frá í fyrra sem á ef til vill enn betur við í dag
Mér var bent á myndband á YouTube sem líklega var gert af tilefni kosninganna, sem þá voru í vændum.
Mér finnst það ekki eiga síður við nú, í ljósi ástandsins og umræðunnar. Kannski aldrei betur en einmitt nú.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 31. október 2008
Ég skil þetta allt saman....hmm...hvar er vínarbrauðið nú aftur?
Ég hef lengi velt fyrir mér, hverjar hinna guðlegu vera á Alþingi eru háttvirtar og hverjar hæstvirtar.
Er einhver fastmótuð regla á því?
Okkar hátt- eða hæstvirti forsætisráðherra hefur áhyggjur. Tja, allavega í korter. Rétt meðan hann er til viðtals við Vísi.
Okkar háttæruverðugi leiðtogi gefur sér þó allavega korter til að hafa áhyggjur. Áhyggjur eins og ég og þú, af framtíð okkar. Hvað verði um húsin okkar og það öryggi sem við vildum búa börnunum okkar.
En sem betur fer rennur af honum fyrr en ella og hann gengur aftur að kjötkatlinum. Ha, ég? Gerði ég eitthvað rangt? Eða gaurinn sem situr nú á svörtuloftum? Hann skeit nú bara í hvert horn í 13 ár. Er það ekki löngu gleymt? Hmm? Vill einhver rétta mér vínarbrauðið?
Rop!
Afsakið!
Ég þen auðvitað á mér skilanefndina og öll þjóðin með.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 30. október 2008
Félagið Foreldrajafnrétti
Kvusslax sjoppa er það?
Ég kíkti inn á vef þeirra fyrir nokkru síðan. Ætlaði að sjá hvaða þjónustu félagið byði upp á.
Ég var semsagt að athuga hvort félagið byði upp á einhverskonar þjónustu til handa forræðislausum foreldrum sem vantar liðsinni í baráttu við þann þurs sem kerfið er.
Á síðunni má finna eitthvað sem kallast stefna félagsins. Þar er að finna langlokutexta. Talað um grundvöll, framtíðarsýn, gildi, hlutverk og meginstefnu. Ok, hlutverk. Það er væntanlega eitthvað sem ég ætti að skoða. Hmmm, kynna málefni sín almenningi, kynna þróun sömu mála erlendis og stuðla að breytingum á gildismati þegar kemur að hlutverkum kynjanna ásamt einhverju mera blabla. Ekki minnst einu orði á þjónustu við félagsmenn.
Ég leitaði betur. Auðvelt að skrá sig og borga árgjald. Án þess þó að vita hvað fæst með því.
OK, einhver er að pósta þarna greinum, en þær eru ekki að hjálpa mér í mínu tiltekna máli.
Spjallþráður. Hmmm, ok. best að skrá sig og spyrjast fyrir. Ó, get hvergi skráð mig! Hmmm, árgjaldið, einmitt. Veit þó allavega núna að fyrir árgjaldið fæ ég aðgang að spjallþræði. Æði.
Best að sjá hvort þeir hafi skrifstofu og jafnvel ráðgjöf. Hmm, nei. Hvergi heimilisfang. Skiljanlegt ef heimilisfangið er rassvasi úti í bæ. Þó er þar að finna símanúmer. Meira að segja skráð á félagið. Reyndar farsímanúmer og ekki vil ég trufla þann sem hefur símann á sér við dagvinnuna sína, hjá Kompaníi HF. Ekkert netfang sem má pósta á? Nei, ekkert netfang félagsins. Hinsvegar má sjá lista yfir þá sem eru í stjórn. Þar má sjá símanúmer þeirra sem og netföng. Ég er bara svo upptekinn á daginn að það hentar mér betur að senda póst en að hanga í símanum.
Best að senda póst á formanninn.
Ég bíð enn svars og ég er löngu búinn að gleyma hver spurningin var.
Ætlast menn í alvöru til að tekið sé mark á þeim? Ég bara spyr.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 25. október 2008
Hver er maðurinn?
Maðurinn er stjórnmálamaður
Smá hint. Maðurinn er fjasari.
Ok, meira hint. Maðurinn er á móti öllu. Þá meina ég öllu!
Ok, eitt hint enn. Maðurinn er handhafi gullmerkis Félags áhugamanna um óánægju
Kommon!!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)