Starfslok

Viðskiptaráðherra spilaði út spaðaásnum í dag. Hefði mátt gerast fyrr, en þó betra seint en aldrei.

Vitanlega er Björgvin ekki vondi karlinn, en með afsögn sinni axlar hann sína pólitísku ábyrgð. Ábyrgð sem N.B. hefur ekkert með lagalega ábyrgð að gera, eða beina sök.

Áður en hann sagði af sér setti hann af stjórn fjálmálaeftirlitsins. Sú ákvörðun var hárrétt. Ég tel Björgvin standa sterkari eftir.

Menn deila um dagsetninguna, 1. mars. Flestir vildu sjá forstjóra FME fara med det samme. Hinsvegar hlýtur maðurinn að hafa sinn uppsagnarfrest eins og aðrir.

Hvað felst hinsvegar í starfslokasamningi hans er eitthvað sem þarf að gera lýðnum ljóst.


mbl.is Jónas hættir 1. mars
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bankið laust á gleðinnar dyr

Fékk góðan vin minn í heimsókn í gær. Eftir gott spjall ákváðum við að kanna statusinn í bænum. Ákváðum að heilsa upp á vin okkar sem býr nálægt miðbænum.

Læddumst að húsi hans. Sáum inn um gluggann hvar hann sat við eldhúsborðið og las.

Komum að dyrunum og bönkuðum hressilega. Hurðin er með frönskum gluggum. Einföldum. Ekki tókst betur en svo að mér tókst að mölva rúðuna sem ég bankaði á. Guði sé lof, já og Ésú, páfanum og biskupnum, að hann hafði sett öryggisfilmu á gluggana. Annars væri ég stórslasaður og hann líklega einnig.

Vitanlega baðst ég afsökunar á ódæðinu og sagðist skyldu gjalda fyrir. Týpískt fyrir þennan vin minn að segja að ég eigi ekki að borga neitt. Hann hafi lengi ætlað að endurnýja þessa hurð og nú væri tíminn til að gera það.

Hann áskildi sér þó rétt á að koma í kaffi og fá að mölva svona eins og einn bolla.

Stend nú í ströngu við að líma öryggisfilmu á bollastellið


Borðar

Nú er tíska að nota borða til áréttingar hinum og þessum málefnum.

Friðsamir mótmælendur bera appelsínugula borða. Friðsamir lögreglumenn nota bláan borða. Samtök um nýtt lýðveldi Íslands nota hvítan borða.

Ekki hefur komið fram hvernig borða ófriðsamir hagfræðingar og læknar nota. Heimildir herma þó að hann muni vera rauður á lit, með merki. Hvítum hring með svörtu tákni innan í sem líkist einhverskonar krossi.


mbl.is Mótmælt á tveimur stöðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fótanuddtæki hljóta uppreist æru

Vegna bilana á vesturlínu, aðalorkuflutningslínu Landsnets til vestfjarða, hefur þurft að grípa til skömmtunar raforku á vestfjörðum.

Skömmtunin er þannig framkvæmd að í stað þess að allir fái sín 220 volt tvo tíma í senn og ekkert rafmagn í aðra tvo tíma, var brugðið á það ráð að beyta heldur svokallaðri 110 volta takmörkun.

Enginn þarf því að búast við rafmagnsleysi, heldur einungis rafmagnstakmörkun. Allir munu hafa aðgang að 110 volta spennu yfir helgina.

Þetta hefur þótt tilefni til að sækja amerísk fótanuddtæki úr geymslum og koma í gagnið.


mbl.is Rafmagn skammtað á Vestfjörðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Strútur í gæslu

Efnahagsdeild Ríkislögreglustjóra hefur í haldi strút sem grunaður er um stórfellt fjármálamisferli.

Rannsókn Ríkislögreglustjóra beindist að fyrirtækinu Slím hf. Stjórnendur þess munu hafa komið undan milljarðatugum með að bjóða hvorum öðrum í afmæli sín og ná þannig að fá lán fyrir afmælisgjöfum.

„Við erum ekki að tala um neitt smáræði“ segir Hróbjartur Böðvarsson, fulltrúi hjá Ríkislögreglustjóra. „Risa pleimókastali og öll Tinnaserían er meðal þess sem fundist hefur.“

þegar lögreglan gerði húsleit í höfuðstöðvum fyrirtækisins flúðu tveir stjórnendur þess, er þar voru, af vettvangi. Framkvæmdastjórinn náði að breyta sér í maðk og komst undan. Enda ávallt verið útsmoginn. Stjórnarformaðurinn, sem breytti sér í strút, náðist skömmu síðar með höfuðið í sandi.

Strútsi

                                                      Back in business


mbl.is Þjófur breytist í geit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hólmsteins syndrome

Mér varð hugsað til Hannesar Hólmsteins. Manns sem mikið hefur haft sig í frammi um áraraðir, en virðist nú hafa gufað upp. Hann er þó enn að blogga.

Maðurinn hefur dásamað frjálhyggjuna og útrásina. Alla tíð hefur hann dásamað Seðlabankastjóra, Davíð nokkurn Oddson. Hrifning hans á þeim manni virðist engum takmörkum háð. Bara á fyrstu síðu bloggs hans má finna „Davíð Oddsson“ átta sinnum og „Davíð“ sextán sinnum.

Hólmsteinn hefur gasprað um áraraðir. Hann dásamaði G. W. Bush árið 2000, hann dásamaði Davíð alla tíð, hann dásamaði útrásina.

Einhvernveginn finnst mér að allt sem HHG dásamar sé rusl og það sem hann dásami í framtíðinni sé ávísun á rusl. Eiginlega er það þannig, að ef HHG lofsamar eitthvað, hljóti það að vera rusl.


20. janúar 2009

Er dagurinn sem lögreglan stimplaði sig endanlega inn sem óvin fólksins.

Fólk safnaðist saman til að mótmæla og framkalla hávaða. Varla telst nokkuð ofbeldisfullt við það?

Lögreglan gerði sig seka um að handtaka börn og „meisa“ fólk að ósekju. Svo sem ljósmyndara sem einungis voru að taka myndir.

Friði mætt með ofbeldi.

Meðan ekkert breytist þarf engan eldflaugavísindamann til að sjá að mótmælin munu halda áfram.
Fólki er ofboðið. Fólk hefur fengið upp í kok.

Það eru engin ný sanninndi að þegar lögregla vopnast, vopnast einnig þeir sem þurfa við hana að eiga.

Ég tel það því aðeins tímaspursmál að lögreglan þurfi að eiga við vopnað fólk. Held þeir hafi kúkað á bakið í dag.

 

Mér fannst við hæfi að hafa fyrirsögnina í anda dómsmálaráðherra.

 

PS. Sama hvaða viðtengd blogg maður skoðar, við fréttir dagsins. Það virðast allir vera komnir með upp í háls. Engir já-menn ríkisstjórnarinnar voga sér að blogga. Þeir virðast allir húka í grenjum sínum og bíða betri dags.

Ekki einu sinni Hannes Hólmsteinn. kannski hann hafi verið beðinn að halda kjafti. Gott ef satt er.

Ónytjungar!

Einhversstaðar væri fyrir löngu búið að taka fram hand- og fótajárn, en ekki á Íslandi. Ó nei. Það má nefnilega ekki persónugera neitt. Ekki einu sinni glæpamennina sem frömdu glæpina. Betra að sleppa því og láta þjóðina taka út refsinguna.

Menn hafa verið sekir fundnir fyrir að koma undan lægri upphæðum, rétt fyrir gjaldþrot.

Hún amma mín sagði mér, svo ég vitni í frægt viðtal, að þeir sem hylmdu yfir glæpi gerðust meðsekir. Gerðust þar með glæpamenn sjálfir.

Er ekki verið að hylma yfir hér? Alla vega sér enginn ástæðu til að kalla til lögreglu, hvað þá meir.

Yfir þá sem við stjórnvölinn sitja má nota eitt gott orð.

Ónytjungar.


mbl.is Hundruð milljarða millifærðir á reikninga erlendra félaga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bush hringdi í Sullenberger

Fengist hefur staðfest að George W. Bush, fráfarandi forseti Bandaríkjanna, hafi í morgun hringt í Jón Gerald Sullenberger og hrósað honum fyrir að hafa á giftusamlegan hátt tekist að lenda bát sínum Thee Viking við bryggjuna á Hudsonfljóti í gær.

Bush hrósaði Jóni einnig fyrir sýnt hugrekki, með að leggja út í Baugsmálið á sínum tíma. Þótt það mál hafi endað í hálfu kafi.

Þá hefur bankastjóri New York bankans fært Jóni lykil að reikningum Baugs, í bankanum, sem þakklætisvott.


mbl.is Bush hringdi í Sullenberger
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvert fóru peningar emírsins?

Þið munið emírinn af Qatar? Þennan sem keypti hlut í Kaupþingi fyrir 25,5 milljarð króna. Stuttu eftir kaupin tók ríkið bankann yfir og emírinn tapaði öllu.

Í fréttum nýverið kom fram að téðir peningar finndust ekki. Hefðu hreinlega gufað upp.

Nú hermir nýjasta skúbbið að tekist hafi að rekja málið. Peningarnir, að a.m.k. hluti þeirra hefðu verið lagðir á þrjá reikninga á Cayman eyjum. Reikninga í eigu þriggja einstaklinga.

Tveir þeirra munu hafa verið hátt settir stjórnendur Kaupþings gamla og sá þriðji mun hafa verið stór hluthafi.

Ef satt reynist er um glæpsamlegt athæfi að ræða. Milljarðaþjófnað.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband